Endurgreiðslustefna

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru að því gefnu að umtalsverð notkun hafi ekki átt sér stað gegn framvísun kaupnótu eða staðfestingu á móttöku sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt eða afhent. Að þessum skilyrðum uppfylltum og gegn framvísun kaupnótu er viðskiptavini heimilt að fá inneignarnótu, skipta í aðra vöru eða fá endurgreiðslu séu 30 dagar eða minna liðnir frá kaupdegi eða afhendingu vöru. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta einkenni, eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vöru.

Eftir fremsta megni viljum við fullnægja þörfum viðskiptavinarins. Ef viðskiptavinur óskar eftir að skila vöru, óháð fyrirframákveðnum tímaramma, er reynt að verða við því.