Viðskiptaskilmálar
Allar upplýsingar á vefnum eru birtar með fyrirvara um breytingar og/eða villur. Einstaka myndir gætu verið af sambærilegri vöru þegar rétt mynd er ekki fáanleg frá framleiðanda.
Verð á vefnum er birt í íslenskum krónum og er virðisaukaskattur innifalinn í verði. Verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram.
Rafbílastöðin ehf
Kennitala: 710321-1400
Skeljatangi 27
270 Mosfellsbær
VSK Númer: 140765
Sendingaskilmálar
Afhending vöru er í samráði við viðskiptavini hverju sinni eða eftir þeim valmöguleikum sem boðnir eru hverju sinni við kaup. Notast er við TVGXpress sendingarþjónustu.
Endurgreiðslustefna
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru að því gefnu að umtalsverð notkun hafi ekki átt sér stað gegn framvísun kaupnótu eða staðfestingu á móttöku sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt eða afhent. Að þessum skilyrðum uppfylltum og gegn framvísun kaupnótu er viðskiptavini heimilt að fá inneignarnótu, skipta í aðra vöru eða fá endurgreiðslu séu 30 dagar eða minna liðnir frá kaupdegi eða afhendingu vöru. Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta einkenni, eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vöru.
Eftir fremsta megni viljum við fullnægja þörfum viðskiptavinarins. Ef viðskiptavinur óskar eftir að skila vöru, óháð fyrirframákveðnum tímaramma, er reynt að verða við því.
Persónuvernd
Öll söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga þinna eru unnin í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Til að við getum uppfyllt þá þjónustu sem er í boði þegar verslað er í vefversluninni þá þurfum við að fá upplýsingar um nafn þitt, heimilisfang, netfang og símanúmer. Við vistum engar greiðsluupplýsingar aðrar en hvaða greiðslumiðil var notast við þegar greitt var fyrir pöntunina.
Við deilum ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema til að uppfylla þá þjónustu sem þú hefur valið, t.d. til að uppfylla óskir um heimsendingarþjónustu.